top of page
IMG_0935.JPG
ÁHEYRNAPRUFUR
TEAM DANSKOMPANÍ 2027

​Áheyrnarprufur


Laugardaginn  17.október munu verða haldnar áheyrnaprufur í DansKompaní fyrir forkeppni Dance World Cup 2027.

Danshöfundar liðsins munu fylgjast með prufunum og eftir hana velja nemendur sem fá að fara í íslensku undankeppnina í Borgarleikhúsinu.
Tilkynning um niðurstöður prufunnar verður send á skráð tölvupóstfang forráðamanns og tilkynnum við því nemendum ekki beint um niðurstöður.

​

Öllum nemendum skólans, 6 ára og eldri, er velkomið að koma í prufurnar, sama hvort nemendur hafi áhuga á að taka þátt í undankeppninni eða vilji hreinlega koma í aukatíma og skemmta sér vel! :)

Það kostar ekkert að taka þátt í áheyrnarprufum.
Allir þátttakendur verða að skrá sig í prufurnar í skráningarforminu hér neðar á síðunni.Danshöfundar gefa sér 4-6 vikur til að setja saman liðið.

 
 

IMG_0995.JPG
med_dwc_finals_spain_stage1_2025_20250711_190431DWC_Spain_Finals_2025.jpg

Haldnar verða þrjár prufur

​


Kl.12-13:45 - Aldursflokkur Mini (nemendur sem eru 6-9 ára þann 1.janúar 2027)


Kl.14 -15:45 - Aldursflokkur Children (nemendur sem eru 10-13 ára þann 1.janúar 2027) 


Kl.16-17:45 - Aldursflokkur Junior og Senior (nemendur sem eru 14-25 ára þann 1.janúar 2027)

 

Kl.17:45 - Einstaklings söngprufur, nemendur sem skrá sig í þessa prufu fá úthlutað

​tímapláss milli kl.17:45-20 

 

​

Skráningu í prufurnar lýkur föstudaginn 16.október.

med__CT29398.jpg
med__CT26228.jpg

Söngprufur
Allir

​Á Dance World Cup er keppt í ýmsum flokkum, m.a. flokkur sem heitir Song and Dance en Team DansKompaní hefur hreppt gull, sifur og bronsverðlaun  í þeim flokki. 

​

Haldnar verða söngprufur í öllum aldursflokkunum og þurfa allir að læra textann við lagið sem finna má hér að neðan og æfa sig fyrir prufurnar. Sungið verður í hóp. Hér að neðan má finna texta og undirspil. Hvetjum nemendur til að læra textann utanað og mæta þannig vel undirbúin í prufuna.  

 

Einstaklings söngprufur

Einstaklings söngprufur eru ekki skilda en við mælum þó með að allir söngfuglar skrái sig í þær prufur. Í einstaklings söngprufum mega nemendur syngja lagið hér að neðan eða velja sér eitthvað annað lag sem hentar þeim.

med__CT29398.jpg

LÖG OG TEXTI

Líf undirspil- Team DansKompaní prufur 2027Artist Name
00:00 / 00:56
Líf með söng - Team DansKompaní prufur 2027Artist Name
00:00 / 00:56
med_DWC_Finals_2026_Stage_1__20260714_223633_120139.jpg
med_DWC_Finals_2026_Stage_1__20260714_223633_120139.jpg

UNDIR- BÚNINGUR

Nemendur í Children, Junior og Senior aldursflokkum

þurfa að læra stutta rútínu fyrir prufuna. Börn í Mini aldursflokki þurfa ekki að læra dansrútínu heima.

 

Með þessu viljum við sjá hvernig nemendur takast á við að læra og æfa rútínu sjálfstætt heima.

Jafnframt viljum við gefa þeim sem þurfa aðeins lengri tíma til að læra nýjar rútínur tækifæri til

að undirbúa sig á sínum hraða og sýna sitt besta í prufunni.

 

Dómarar munu einnig horfa til útgeislunar, tjáningar og þess hvernig nemendur setja sinn eigin

karakter og persónuleika í dansinn. Við viljum sjá nemendur gefa dansinum líf,

njóta þess að dansa og gera rútínuna að sinni.

 

Mikilvægast er að allir leggi sig fram og sýni sitt besta!

​

​Rútínuna má sjá á myndbandi hér á síðunni

Vinsamlegast kynntu þér eftirfarandi upplýsingar ef þú/þitt barn hefur áhuga á að taka þátt í undankeppninni.

DansKompaní hefur verið boðið að taka þátt í undankeppni fyrir heimsmeistarakeppnina í dansi, Dance World Cup, sem haldin verður í Dublin næsta sumar. 

Undankeppnin: Undankeppnin verður haldin í Borgarleikhúsinu 21. og 22.febrúar 2027. Þeir nemendur sem komast áfram upp úr undankeppninni fara í íslenska landsliðið í dansi sem keppir fyrir okkar hönd í Lissabon sumarið 2027. 
 
Gengi DansKompaní í þessari keppni hefur vægast sagt verið frábært. Mikill liðsandi hefur einkennt hópinn og hlökkum við mikið til að setja saman nýtt lið.
Haldinn verður kynningarfundur eftir að hópurinn hefur verið valinn þar sem við kynnum ferlið betur fyrir þátttakendum og svörum spurningum. 


Í svona keppnum erlendis hefur tíðkast að hver skóli sendir atriði undir sínu nafni í keppnina, hvort sem um er að ræða einstaklingsatriði (sóló), dúett, tríó eða hópatriði, og er það í flestum tilfellum undir kennurum skólans að semja atriði fyrir nemendur sína eða í samvinnu við þá.

 

Mikilvægt er að athuga eftirfarandi atriði:

  • Allir nemendur í B, C, D og E hópum eru velkomnir í áheyrnarprufurnar um helgina. Kenndar verða skemmtilegar og krefjandi rútínur sem gaman er að glíma við, og því um að ræða skemmtilegt og uppbyggjandi umhverfi.

  • Danshöfundar og þjálfarar liðsins munu fylgjast með prufunum og velja þá dansara sem munu fara fyrir hönd skólans í undankeppni fyrir heimsmeistaramótið.

  • Þeir dansarar sem valdir verða þurfa að vera lausir í desember (7.-21.des), janúar og febrúar til að taka þátt í undankeppninni og vera tilbúinir að borga forkeppnisgjald Dance World Cup. Skv.upplýsingum frá Dance World Cup eru keppnisgjöld fyrir forkeppni 2027 eftirfarandi: Kr.11.000 skráningagjald, event fee kr.5.500, sóló kr.7.500, dúett kr.6.000, small og large group kr.5.500  Verðin eru pr.keppanda). 

  • Komist nemandi áfram úr prufunum mun hann þurfa að læra og æfa atriði sem samið verður af kennurum skólans. 

  • Verði nemandi valinn í DWC hóp DansKompaní þarf nemandi að mæta á aukaæfingar í samráði við kennara, auk þess að þurfa að gera heimaæfingar.

  • Danshöfundar raða niður í dansatriði og hópa og ákveða hverjir fá sóló (einstaklingsdans), dúett, tríó og hverjir eru í hópatriðum.

  • Þátttöku í keppninni fylgir ákveðinn kostnaður (æfingar, búningar, keppnisgjöld o.þ.h.) sem reynt er þó að halda í lágmarki. Nánari upplýsingar um það verða gefnar þegar valið er í hópinn.

  • Sá sem er valinn getur afþakkað þátttöku, treysti viðkomandi sér ekki til að keppa. Rætt verður við foreldra/forráðamenn um niðurstöðu prufunnar áður en rætt er við nemandann svo foreldrar geti tekið ákvörðun um hvað gera skal.

  • Valið er í nýtt lið ár hvert og hafa því allir jafnt tækifæri á að komast í liðið, sama hvort nemandi hafi áður komist í Team DansKompaní eða ekki.

  • Hátt í 380 nemendur æfa í DansKompaní og aðeins hluti þeirra sem mætir í prufurnar verða valdir. Þó ber að hafa í huga að þetta er góður lærdómur fyrir þá krakka sem ekki komast áfram að takast á við hvað gerist þegar við náum ekki markmiðinu okkar strax. Mikilvægt er fyrir foreldra þeirra barna að ræða við þau um stuðning við vini sína, liðsheild, hvatningu og það að gefast aldrei upp heldur líta á björtu hliðarnar, vinna vel í tímum og reyna aftur á næsta ári. Einnig er mikilvægt fyrir foreldra þeirra barna sem komast áfram að ræða við þau um hógværð, liðsheild, að hætta ekki að æfa þó svo maður nái ákveðnu markmiði og að styðja alltaf vini sína.

  • DansKompaní áskilur sér þann rétt að velja engan nemanda, teljum við að þeir séu ekki tilbúnir að keppa.

 
Verið er að leita að dansara sem:

  • Sýnir mikinn metnað, aga og áhuga

    • Þátttaka í undankeppninni hefur í för með sér aukaæfingar, miklar heimaæfingar og hugrekki til að standa á sviði fyrir framan fjölda fólks.

  • Dansar af mikilli nákvæmni og tækni

  • Nýtur sín á sviðinu og sýnir persónuleikann sinn

  • Sýnir metnað, æfir rútínurnar sínar heima og mætir undirbúinn í tíma.

  • Einnig er farið yfir mætingu og ástundun nemanda seinustu tvö dansár

  • Gæti átt möguleika á því að komast á heimsmeistaramótið fyrir hönd DansKopmaní sumarið 2027 og þyrfti þá að vera laus til að keppa í undankeppninni í Borgarleikhúsinu 21. og 22.febrúar 2027  sem og í aðalkeppninni í Lissabon 29.júní-9.júlí, komi til þess.

med_DWC_Finals_2026_Stage_1__20260712_165153_88663.jpg
IMG_2192.JPG
IMG_2191.JPG
IMG_2193.JPG
IMG_2190.JPG
bottom of page