B-UGLAN
SKRÁNING

Félagslífið í DansKompaní hefur alltaf verið mjög öflugt og hlökkum við nú til að byrja aftur með B-Ugluna eftir 3 ára pásu!
Þá ætlum við að hittast allir B-hóparnir saman og hafa gaman. Þetta verður náttfatapartí og við förum í ýmsa spennandi og skemmtilega leiki, borðum saman pizzu og höfum gaman.
Með þessum hætti hristum við hópana saman fyrir veturinn og skemmtum okkur vel öll saman.
Það er mæting í DansKompaní laugardaginn 15.október kl.17 og gleðinni lýkur kl.20
Nemendur þurfa að koma með eftirfarandi með sér:
-
Pening kr.3.000, ath enginn posi (f.pizzu, drykk, nammi, ýmsum hlutum í leikina, undirbúningi og stafsmenn á staðnum).
-
Það er gott að hafa með sér vatnsbrúsa til að geta gripið í
-
Góða skapið!
Skráning er nauðsynleg til þess að við gerum okkur grein fyrir mætingu og getum undirbúið kvöldið sem best í samræmi við fjölda.
Ath! skráningu lýkur fimmtudagskvöldið 13.okt - greitt er við mætingu - Þetta verður svaka gaman:)