top of page
328A6869-Enhanced-NR.jpg

DansKompaní

Sumarnámskeið

Júní 2025

SUMARNÁMSKEIÐ
4-5 ÁRA (ÁRGANGAR 2020-2021)

Vinsælu sumardansnámskeið DansKompaní eru stutt, skemmtileg og góð kynning áður en vetrarstarfið hefst af fullum krafti í haust. Við bjóðum uppá 3ja vikna sumardansnámskeið þar sem nemendur æfa 2x í viku í 3 vikur. Við hvetjum foreldrar til að skrá börnin sín tímanlega þar sem þessi námskeið hafa fyllst hratt undanfarin ár.

_MFP5097.jpg

3 VIKNA SUMARNÁMSKEIÐ

100% danstímar og ekki gerð krafa um danstæknigrunn.

Í dansnámi fyrir 4–5 ára fá börnin að hreyfa sig, hlæja og njóta þess að vera skapandi í öruggu og hlýlegu umhverfi. Við leggjum áherslu á gleði, sjálfstraust og félagsfærni – dansgleðin sprettur fram í gegnum leik og tónlist. Fullkomin byrjun á ævintýri hreyfingar og tjáningar!

 

Hvar og hvenær?

Námskeiðið er í 3 vikur frá 9.-27.júní

Nemendur æfa í 45 mínútur, 2x í viku 

Skráning hefst 3.maí

bottom of page