
Sumarnámskeið
Júní 2025
SUMARNÁMSKEIÐ
13-15 ÁRA (ÁRGANGAR 2010-2012)
Vinsælu sumardansnámskeið DansKompaní eru stutt, skemmtileg og góð kynning áður en vetrarstarfið hefst af fullum krafti í haust. Við bjóðum uppá 3ja vikna sumardansnámskeið þar sem nemendur æfa 2x í viku í 3 vikur. Við hvetjum ykkur til að senda inn skráningu tímanlega þar sem þessi námskeið hafa fyllst hratt undanfarin ár.

3 VIKNA SUMARNÁMSKEIÐ
Viltu styrkja líkamann, bæta líkamsbeitingu og auka liðleika, hvort sem þú ert dansari eða vilt prófa eitthvað nýtt?
Þetta sumarnámskeið er hannað bæði fyrir þá sem hafa reynslu af dansi og fyrir byrjendur sem vilja efla líkamlega færni á öruggan og faglegan hátt.
Við vinnum með styrktaræfingar, líkamsvitund, dans tækni og djúpar teygjur – allt sem skapar betri líkamsstöðu, úthald og liðleika. Kennslan fer fram í hvetjandi umhverfi þar sem allir fá að njóta sín, sama hvaðan þeir koma.
Frábær leið til að halda sér í formi og prófa eitthvað nýtt í sumar.
Takmarkað pláss, skráðu þig strax!
Hvar og hvenær?
Námskeiðið er í 3 vikur frá 9.-27.júní
Nemendur æfa í 75 mínútur, 2x í viku
Skráning hefst 3.maí