
Dansnámskeið
Júní-júlí 2026
DANSNÁMSKEIÐ
10-12 ÁRA (ÁRGANGAR 2014-2016)
Vinsælu sumardansnámskeið DansKompaní eru stutt, skemmtileg og góð kynning áður en vetrarstarfið hefst af fullum krafti í haust. Við bjóðum uppá 3ja vikna sumardansnámskeið þar sem nemendur æfa 2x í viku í 3 vikur. Við hvetjum foreldra til að skrá börnin sín tímanlega þar sem þessi námskeið hafa fyllst hratt undanfarin ár.

3 VIKNA DANSNÁMSKEIÐ
Dansnámið fyrir 10–12 ára er byggt á skapandi hreyfingu, tæknilegum undirstöðum og sterku sjálfstrausti. Hér fá börn tækifæri til að tjá sig í gegnum dans, þroska líkamsvitund og byggja upp styrk, úthald og samvinnu, allt í öruggu og hvetjandi umhverfi.
Kennslan er fagleg, fjölbreytt og skemmtileg, hvort sem barnið hefur reynslu eða er að byrja.
Hvar og hvenær?
Námskeiðið er í 3 vikur frá 15.júní-3.júlí
Nemendur æfa í 60 mínútur, 2x í viku
Skráning hefst 18.maí
