top of page

TEAM DANSKOMPANÍ
AUKAPRUFUR

m_l_dwcworld_finals_2023_red_act1_045754.jpeg
m_l_dwcworld_finals_2023_red_act1_069320.jpg
m_l_dwcworld_finals_2023_red_act2_026719.jpg
m_l_dwcworld_finals_2023_red_act2_027651.jpg

Aukaprufur
Team DansKompaní

Við höfum fengið undanþágu frá Dance World Cup til að taka inn örfáa nýja dansara í Team DansKompaní. Ef þú hefur áhuga á að sækja um í keppnisliðið fyrir árið 2024 þarf að senda inn videoprufu fyrir kl.12 laugardaginn 6.apríl.

Uppsetning á videoprufu:

1. Þú skráir þig í prufurnar hér að neðan

2. Nemandi þarf að semja stuttan dans, 30 sek-1 mín með eftirfarandi hlutum:

Pirouette - High kicks (fótlyftu) - Spilittstökki - Stökk að eigin vali - Spuna í lokin sem sýnir þínar ert best/bestur í.

Danshöfundar velja úr prufunum um helgina.

Mikilvægt er að foreldrar og nemendur kynni sér vel allar upplýsingar um verkefnið en þær má finna hér fyrir neðan

Vinsamlegast kynntu þér eftirfarandi upplýsingar ef þú/þitt barn hefur áhuga á að taka þátt í prufum fyrir team danskompaní.

DansKompaní hefur verið boðið að taka þátt í undankeppni fyrir heimsmeistarakeppnina í dansi, Dance World Cup, sem haldin verður í Prag í Tékklandi næsta sumar. 

Undankeppnin: Undankeppnin var haldin í Borgarleikhúsinu 19.febrúar 2024. Öll atriði DansKompaní komist í íslenska landsliðið og keppa fyrir okkar hönd í Prag sumarið 2024. DansKompaní var boðið að senda inn fleiri atriði í videoforkeppni sem haldin verður í lok apríl. Við stefnum á að senda 4 atriði í hana.
 
Gengi DansKompaní í þessari keppni hefur vægast sagt verið frábært. Mikill liðsandi hefur einkennt hópinn og hlökkum við mikið til að setja saman nýtt lið.

Í svona keppnum erlendis hefur tíðkast að hver skóli sendir atriði undir sínu nafni í keppnina, hvort sem um er að ræða einstaklingsatriði (sóló), dúett, tríó eða hópatriði, og er það í flestum tilfellum undir kennurum skólans að semja atriði fyrir nemendur sína eða í samvinnu við þá.

 

Mikilvægt er að athuga eftirfarandi atriði:

  • Allir nemendur í B, C, D og E hópum í DansKompaní eru velkomið að senda inn videoprufu. 

  • Danshöfundar liðsins munu fara yfir prufurnar og velja þá dansara sem munu fara fyrir hönd skólans í undankeppni/úrslitakeppni fyrir heimsmeistaramótið.

  • Þeir dansarar sem valdir verða í aukaatriðin þurfa að vera lausir í apríl  til að taka þátt í videoundankeppninni og vera tilbúinir að borga keppnisgjald fyrir forkeppni Dance World Cup. Nemendur sem fá pláss í atriðum sem nú þegar eru komin með sæti á heimsmeistaramótinu þurfa einnig að greiða forkeppnisgjöld Dance World Cup

  • Nemandi sem kemst inn í atriði sem keppti á forkeppninni í febrúar þarf að læra það af myndbandsupptöku og kunna því atriðið á fyrstu æfingu.

  • Komist nemandi áfram úr undankeppninni í Heimsmeistarakeppnina sjálfa mun hann þurfa að taka þátt í fjáröflun í samvinnu við landsliðið sem myndað verður.

  • Komist nemandi áfram úr prufunum mun hann þurfa að læra og æfa atriði sem samið verður af kennurum skólans. 

  • Verði nemandi valinn í DWC hóp DansKompaní þarf nemandi að mæta á aukaæfingar í samráði við kennara, auk þess að þurfa að gera heimaæfingar.

  • Danshöfundar raða niður í dansatriði og hópa og ákveða hverjir fá sóló (einstaklingsdans) og hverjir verða í  dúett, tríó og hópdans.

  • Þáttöku í keppninni fylgir ákveðinn kostnaður (æfingar, búningar, keppnisgjöld o.þ.h.) sem reynt er þó að halda í lágmarki. Nánari upplýsingar um það verða gefnar þegar valið er í hópinn.

  • Sá sem er valinn getur þakkað fyrir en neitað þáttöku, treysti hún eða hann sér ekki til að keppa. Rætt verður við foreldra/forráðamenn um niðurstöðu prufunnar áður en rætt er við nemandann svo foreldrar geti tekið ákvörðun um hvað gera skal.

  • Valið er í nýtt lið ár hvert og hafa því allir jafnt tækifæri á að komast í liðið, sama hvort nemandi hafi áður komist í Team DansKompaní eða ekki.

  • Hátt í 400 nemendur æfa í DansKompaní og aðeins hluti þeirra sem mætir í prufurnar verða valdir. Þó ber að hafa í huga að þetta er góður lærdómur fyrir þá krakka sem ekki komast áfram að takast á við hvað gerist þegar við náum ekki markmiðinu okkar strax. Mikilvægt er fyrir foreldra þeirra barna að ræða við þau um stuðning við vini sína, liðsheild, hvatningu og það að gefast aldrei upp heldur líta á björtu hliðarnar, vinna vel í tímum og reyna aftur á næsta ári. Einnig er mikilvægt fyrir foreldra þeirra barna sem komast áfram að ræða við þau um hógværð, liðsheild, að hætta ekki að æfa þó svo maður nái ákveðnu markmiði og að styðja alltaf vini sína.

  • DansKompaní áskilur sér þann rétt að velja engan nemanda, teljum við að þeir séu ekki tilbúnir að keppa.

 
Verið er að leita að dansara sem:

  • Sýnir mikinn metnað, aga og áhuga

    • Þáttaka í keppninni hefur í för með sér aukaæfingar, miklar heimaæfingar og hugrekki til að standa á sviði fyrir framan fjölda fólks.

  • Dansar af mikilli nákvæmni og tækni

  • Nýtur sín á sviðinu og sýnir persónuleikann sinn

  • Einnig er farið yfir mætingu og ástundun nemanda seinasta dansárið

  • Gæti átt möguleika á því að komast á heimsmeistaramótið fyrir hönd DansKopmaní sumarið 2024 og þyrfti þá að vera laus til að keppa í videoundakeppni í apríl sem og í aðalkeppninni í Prag 26.júní-6.júlí 2024, komi til þess.

bottom of page