ROSINA ANDREWS WORKSHOP
Við í DansKompaní erum einstaklega heppin að fá til okkar hina víðsfrægu Rosinu Andrews!
Rosina er einn þekktasti danskennari Englands, stofnandi The Rosina Andrews Method og höfundur metsölubókanna Pirouette Surgery og Leap Surgery. Verk hennar hafa unnið til fjölda verðlauna og nemendur hennar margfaldir Englands-og Evrópumeistarar í dansi.
Undanfarin ár hefur Rosina haldið workshop í fjölda dansskóla um allan heim ásamt því að halda uppi mjög vinsælum sumarskóla fyrir bestu dansara Evrópu. Það er því mikill heiður fyrir okkur að hún skuli nú koma aftur til Íslands að deila vitneskju sinni með okkur!
Sunnudaginn 20.október mun Rosina halda intensive dansnámskeið ásamt eiginmanni sínum, einkaþjálfaranum Sam Downing og aðstoðarmanni þeirra, Rory Fraser.
Á námskeiðinu verður farið í jasstækni (með sérstakri áherslu á pirouette-a og stökk), kenndir verða fjölbreyttir teygju-og styrktartímar ásamt artist developement tíma.
Kennt verður í tveimur aldursflokkum/getustigum, 9-12 ára (2007-2010) og 13 ára og eldri (2006+). DansKompaní áskilur sér rétt til að færa nemendur milli hópa ef talið er að hinn hópurinn henti nemanda betur.
Allar upplýsingar um stundaskrá, skráningu og verð má finna hér að neðan.