top of page

DansKompaní

Dance Camp 

DanceCamp logonDC.png

Júní 2022

DANCE CAMP
11-13 ÁRA (ÁRGANGAR 2009-2011)

DansKompaní DanceCamp eru ótrúlega spennandi sumarnámskeið hjá okkur!

Á námskeiðunum munu þátttakendur taka þátt í krefjandi og skemmtilegum æfingum ásamt því að kynnast hverju öðru og læra skemmtilega dansa. Áhersla verður lögð á að hver og einn vaxi og auki sjálfstraust sitt, dansgleði, liðleika og styrk.

Námskeiðið er 3 vikur, fá 6.-24.júní, og geta nemendur Commercial og/eða Contemporary  (sjá nánar neðar). 

DanceCamp logonDC.png
ReidiDrottn2010.jpg
_MG_3149.jpg

DanceCamp

fyrir 11-13 ÁRA

 

COMMERCIAL BRAUT

Dansstíllinn er vinsæll í dag og sjáum við hann t.d. mikið á TikTok.

Commercial brautin er full af fjöri og snerpu! Lögð er áhersla á styrk, snerpu og nákvæmni og munu nemendur læra krefjandi og skemmtilega Commercial dansa sem reyna bæði á heila og líkama. Unnið verður í karakter, sviðsframkomu og sjálfsöryggi ásamt því að vinna í hópi, læra um dansform og mikilvægi samheldni.

Hvað er Commercial?

Commercial hefur notið gífulegrar vinsældar um allan heim undanfarin ár en stíllinn byggir á blöndu af hinum ýmsu stílum dansheimsins. Við sjáum Commercial t.d. í tónlistarmyndböndum, tískusýningum, auglýsingum o.fl.

 

CONTEMPORARY BRAUT  

Contemporary brautin hentar öllum metnaðarfullum og skapandi nemendum sem vilja skora á sig!  Áhersla verður lögð á nútímadanstækni, sköpun, styrk og liðleika. 

Nemendur sem tekið hafa þessa tíma á veturna hafa náð töluvert hraðari framförum í dansi og eru þeir frábærir fyrir þá sem vilja bæta danstækni sína.

Hvað er contemporary?

Contemporary eða nútímadans, eins og hann kallast á íslensku, er dansstíll þar sem lögð er áhersla á flæði, að æfingar taki sitt pláss, floowork (dans á gólfi), snerpu, spuna, tengja saman andardrátt og hreyfingar og segja sögur með dansinum. Nútímadansinn er einn vinsælasti valtími skólans á veturna.

Hvar og hvenær?

Tímabil 7.-24.júní

Hver braut er kennd í 1,5 klst. 2x í viku í 3 vikur. Hægt að velja 1-2 brautir

bottom of page